Pro 2 – Full cleaning versatility

GTECH

Ný og endurbætt!

Pro 2 sameinar þægindi þráðlausrar ryksugu og fjölhæfni uppréttrar ryksugu og handryksugu. Stórir og öflugir pokar þar sem ekki þarf að þvo eða hreinsa síur hafa í för með sér aukið hreinlæti þegar tæma þarf ryksuguna.

48.880kr.

19 in stock

Improved

Mikil afköst

Hin nýja og endurbætta Gtech Pro 2 ryksuga skilar miklum afköstum á teppum, harðgólfum og jafnvel gólfum með djúpum rifum. Rafknúinn burstahausinn í Pro 2 er með einstakri AirLOC-tækni Gtech, sem er hönnuð til að sjúga upp stærri hluti þegar þú ýtir ryksugunni áfram og minni óhreinindi, ryk og hár þegar þú dregur hana til baka. Rafknúni burstinn kemur einnig í veg fyrir uppsöfnun hára og lóar.

48.880kr.

19 in stock

Transformed

Fjölhæfni

Auðvelt er að breyta Pro 2 í handhelda ryksugu fyrir áklæði, stiga og alla erfiða bletti, eins og gólflista og þröng horn. Hún er með 11 hreinsunarstillingum þar sem aukahlutirnir eru notaðir í mismunandi samsetningum eftir aðstæðum.

48.880kr.

19 in stock

LOSAÐU ÞIG VIÐ RYKSKÝIÐ

Með því að nota poka haldast óhreinindin á sínum stað þegar þú tæmir ryksuguna í stað þess að sleppa aftur út í umhverfið, sem heldur heimilinu mun hreinna. Ryksugupokarnir okkar eru festir saman að ofan og á hliðunum sem gerir þá nógu sterka til að halda inni öllum óhreinindum meðan þú þrífur og til að rifna ekki þegar þú losar þá. Finndu fleiri ástæður til að velja ryksugu með poka hér

AUKIN ÞRIFGETA

Til að nýta hvern poka sem best er óhreinindum stöðugt blásið inn í pokann þegar ryksugað er. Það þýðir að hver poki getur rúmað meiri óhreinindi en aðrir pokar af svipaðri stærð. Fellingarnar í pokanum auka rúmtak þeirra sem þýðir að hægt er ryksuga lengur án þess að þurfa að skipta. Þú nærð sömu afköstum og með pokalausri ryksugu en hún er skilvirkari því hún er ekki með hvirfilhólfi sem notar meiri orku.

Þriggja laga ryksugupoki

Ryksugupokarnir í Pro 2 eru gerðir úr þremur lögum sem gerir þrifin þægilegri og hreinlegri. Lögin í pokunum anda og sía út mismunandi stærðir af ryki og óhreinindum. Það gerir það að verkum að loftflæðið þjappar óhreinindunum betur saman sem eykur bæði rúmtak og endingu. Hver poki gegnir í raun hlutverki síu og fangar óhreinindi og ryk þannig að nýr poki tryggir fullkomin þrif.

HVERSU LENGI ENDIST POKINN?

Það hve marga poka þú þarft fer eftir því hve margir búa á heimilinu, hvort þar eru börn eða gæludýr og hversu oft er þrifið. Á heimilum þar sem eru börn og gæludýr og þrifið er þrisvar í viku, eru að meðaltali notaðir 10 pokar á ári. Þú færð tvo poka FRÍTT með Pro 2 ryksugunni, og pakkning með 10 Pro-ryksugupokum kostar aðeins XX kr.

Upplýsingar

Eiginleikar og tæknilýsing

Létt og þráðlaus

Létt og þráðlaus

Þrátt fyrir að Pro 2 sé einstaklega sterkbyggð er hún fislétt, aðeins 2,8 kg, og þar sem engin snúra heldur aftur af þér er auðvelt að fara á milli herbergja. Tvískipt álrör auðveldar þér að lyfta ryksugunni auk þess sem minna fer fyrir henni í geymslu.

Mikill endingartími

Mikill endingartími

Ryksugan er knúin af 22V litíumjónarafhlöðu sem tekur aðeins 4 klukkustundir að fullhlaða. Þú getur valið milli tveggja kraftstillinga svo þú stjórnar hvernig þú þrífur. Veldu „Eco“ stillingu sem tryggir þér 40 mínútna endingartíma* eða keyrðu allt í botn í „Max“ stillingu í allt að 20 mínútur*. Það er fjórskiptur LED-vísir á rafhlöðunni sem sýnir þér hve mikið er eftir af henni.

Lítið viðhald

Lítið viðhald

Pro 2 ryksugan er mjög auðveld í viðhaldi. Pokinn er einnig sía, þannig að í hvert sinn sem skipt er um poka er einnig skipt um síu.
Auðvelt er að skipta um poka; þú bara opnar lokið og pokinn fer auðveldlega af gúmmíinnsiglinu. Svo smellirðu einfaldlega nýjum poka á og ert til í slaginn.

LED-ljós

LED-ljós

Breið LED-ljós lýsa upp svæðið sem verið er að þrífa, svo ryk og óhreinindi undir húsgögnum og í þröngum hornum verða sýnilegri.

Bíla- og húsvagnaþrif

Bíla- og húsvagnaþrif

Gtech Pro 2 er hægt að nota sem handhelda ryksugu sem auðveldar þrif á litlum rýmum eins og inni í bílum og húsvögnum þar sem óhreinindi leynast oft í skúmaskotum.

Gtech Pro2

6 ástæður til að prófa ryksugu með poka

Ef þú hefur ekki prófað ryksugu með poka áður getur verið flókið að finna út úr því hvort hún henti þínu heimili og lífsstíl. Hér koma 6 helstu ástæðurnar fyrir því að prófa ryksugu með poka…

Skilvirkni

Skilvirkni

Léttu pokaryksugurnar okkar eru hannaðar til að vera einstaklega skilvirkar, sem gerir það auðveldara að ryksuga og er betra fyrir umhverfið. Margar pokalausar ryksugur eru með hvirfilhólfi en þær eru orkufrekari sem þýðir að þær eyða rafhlöðunni hraðar ef um þráðlausa ryksugu er að ræða.
Pokaryksugurnar okkar halda rykinu og óhreinindunum í pokanum frekar en í hólfi – það hjálpar þeim að viðhalda soginu betur en hvirfilryksugur og stuðlar að betri þrifum. Ef sogið er á hæsta styrk tekur minni tíma að þrífa en með ryksugu með litlu sogi og þannig nota þær minni orku. Það þýðir að pokaryksugurnar okkar eru sparneytnari. Auk þess lengir þetta endingartíma ryksugunnar og gerir hana þannig umhverfisvænni.

Ódýr og aðgengileg

Ódýr og aðgengileg

Verum hreinskilin, ryksugupokar hafa ekki mjög gott orðspor! Litið var á þá sem dýra og illfáanlega. En þú þarft hvorki að greiða of fjár né leita í hillum stórmarkaða. Gtech HyLite ryksugupokarnir fást á netinu. Þeir eru einnig mjög ódýrir, 15 saman í pakka kosta aðeins XX kr. Einnig er hægt að kaupa Gtech Pro ryksugupokana á netinu þar sem 10 saman í pakka kosta aðeins XX kr. Þar að auki geturðu fengið þá senda heim til þín eftir aðeins nokkra daga sem gerir þrifin enn auðveldari. Skoðaðu skilmála og skilyrði um afhendingu hér.

Lítið viðhald og henta ofnæmissjúklingum

Lítið viðhald og henta ofnæmissjúklingum

Eitt af því besta við pokaryksugur er að það þarf ekki að hugsa um neinar síur. Sumar ryksugur eru með síum sem þarf að þrífa mánaðarlega eða skipta reglulega út.
Í pokaryksugunum er nóg að skipta um poka þegar hann fyllist (og hann endist lengur en maður heldur). Hver poki gegnir í raun hlutverki síu og fangar óhreinindi og ryk þannig að nýr poki tryggir fullkomin þrif.Þriggja laga pokarnir eru sérhannaðir til að rifna ekki svo ólíklegra er að það komi gat á þá við notkun eða förgun. Það tryggir aukið hreinlæti sem er fullkomið fyrir barnaheimili! Pokarnir fanga óhreinindi og ryk innan laganna þriggja sem dregur úr hættunni á rykskýi þegar þeim er fleygt. Þetta kemur sér sérlega vel fyrir fólk með ofnæmi þar sem rykið getur innihaldið frjókorn sem helst inni í pokunum. Pokarnir stuðla einnig að betra hreinlæti. Enginn vill að óhreinindin sleppi aftur út úr ryksugunni eftir að hafa eytt tíma í að fjarlægja þau. Þetta á við um hár, frjókorn og rykmaura – allt sem þú vilt ekki að losni úr ílátinu. Þar að auki þarftu ekki að ryksuga aftur í kringum ruslatunnuna þar sem minni hætta er á að ryk sleppi út þegar ryksugan er tæmd.

Leggðu þitt af mörkum fyrir umhverfið

Leggðu þitt af mörkum fyrir umhverfið

Það er ekki nóg að tala um að koma í veg fyrir loftslagsbreytingar, við þurfum öll að leggja okkar af mörkum. Þess vegna eru pokarnir okkar umhverfisvænir.

Pokarnir eru gerðir úr efni sem andar og það gerir þá umhverfisvænni í samanburði við pokalausar ryksugur. Eins og áður var nefnt gera pokarnir það auðveldara og hreinlegra að tæma ryksuguna, þar sem minni hætta er á að ryk sleppi út þegar þeim er fleygt. Tæma þarf úr mörgum pokalausum ryksugum í plastpoka til þess að koma í veg fyrir að óhreinindin fari út um allt. Trúirðu því ekki? Skoðaðu notendaleiðbeiningarnar með pokaryksugunni þinni. Oft er mælt með því að tæma ryksugurnar með þessum hætti svo óhreinindi fari ekki út um allt en þetta eykur plastnotkun og er miklu verra fyrir umhverfið.

Lengri ending

Lengri ending

Pokaryksugur eru með poka sem eru settir í óhreinindahólfið. Það ver ryksuguna sjálfa gegn því að í henni safnist upp fita sem er í heimilisóhreinindum. Hugsaðu um allt sem þú þrífur á venjulegri viku, allt frá matarleifum til hárs og ryks. Nýjasta smáryksugan okkar er laus við allt slíkt.

Pokalausar ryksugur eru ekki með neitt til að vernda óhreinindahólfin sem þýðir að þær eru líklegri til að stíflast með tímanum. Pokaryksugur skemmast ekki með sama hætti svo hægt er að nota þær mun lengur án þess að afköst þeirra séu takmörkuð og þar að auki endast þær lengur. Í hnotskurn þurfa pokaryksugur miklu minna viðhald og svo eru þær mun auðveldari í notkun til lengri tíma litið…

Margra ára notkun

Margra ára notkun

Á sorpstöðvum má víða finna fullt af pokalausum ryksugum sem eru ekki ónýtar en hafa ekki fengið viðeigandi viðhald. Sumir velja pokalausar ryksugur en nenna svo ekki að sinna því viðhaldi sem þær krefjast, eins og að þrífa síurnar. Það er vandamálið við of flókin tæki í óhreinu umhverfi – ef þau fá ekki rétta umhirðu endast þau ekki lengi!

Upplýsingar

Tæknilegar upplýsingar fyrir Gtech Pro 2

Battery Icon

Li-ion

Battery Icon

22V

Battery Icon

2.8

Battery Icon

4hcharge

Gtech Pro 2

Nýja létta pokaryksugan frá Gtech fyrir gæludýraheimili.

48.880kr.

19 in stock